sunnudagur, 23. nóvember 2008
Hitatölur frá annari plánetu ?
Það var veeeerulega ánægjulegt að sjá góðan slurk af sjó í fjöllunum hér í kring þegar við fórum út í kuldann í morgun :) Ekki sama sagan á fróni - kíkti á mbl í dag (ekki lýgur mogginn) og leit á veðrið á Íslandi... "jiiidúddamía", er einhver lifandi á skerinu í þessum suðupotti ?
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
6 ummæli:
Hehe - Lína ég trúi ekki að þú hafir verið ánægð með að sjá sjó í fjöllunum en miðað við hitatölurnar á Íslandi er líklegra að fjöllin hér séu komin á kaf.
Kveðja - Sigríður Ásta
Blessuð - Ha ha...það er gott að fá ókeypis yfirlestur frá gæðatryggingadeild Actavis. Þetta klúður á svo ágætlega við í þessu samhengi að ég læt það standa ;-)
eins gott að maður lítur út um gluggann áður en farið er út... skoðar ekki bara mbl.is það var nebbla þessi fínasta stórhríð í dag;) aldeilis ágætt og kósí að vera inni og kveikja á seríum;) en það er örugglega komin einhver snjór í hlíðarfjallið ... komið þið ekki bara hingað á skíði? örugglega svipað og þarna í kanada... hmm? knús og kveðjur frá Stínu
Veistu Stína ég væri sko alveg til í að vera fyrir norðan núna - það vantar töluvert uppá "aðventu-fílinginn" hér í rigningunni ;-) Hils/L
Heyrðu skvísa, er bara ekkert markvert að gerast í Kanada? Þögn á línunni? ussss...
Já takk fyrir "spark í rassinn" Ella...þetta er óttaleg pennaleti og ég kippi þessu auðvitað í liðinn ;)
Skrifa ummæli