þriðjudagur, 16. desember 2008

"Bull og barnaskapur. Hljóðið er bara hvinur í vindinum. Það eina sem er raunverulegt er vænn Viskýsjúss."

(Hér er vitnað í hetjuna Kolbein Kaftein úr Tinna í Tíbet. Þetta eru "námsbækurnar" í íslensku fyrir Alex sem við lesum þessa dagana, eina efnið sem ég get mælt með og úr verður mjög skemmtilegur orðaforði).

En já hmm að blogginu. Ég las í blaðinu um daginn að óprúttinn einstaklingur á Litla Hrauni hafi sent inn dánartilkynningu í moggann fyrir sprellifandi einstakling. Hefur nokkur gert hið sama þótt við höfum ekki sinnt þessu bloggi undanfarið ? Við höfum verið öllu duglegri að uppfæra myndasíðuna okkar undanfarið - erum alveg sprell sko. Nú er bara vika í að við keyrum í skíðafríið til Revelstoke og gríðarleg tilhlökkun í gangi. Svo er líka hangikjötið mætt á staðinn þökk sé góðum foreldrum í Baldurshaga !

Um síðustu helgi tókum við okkur til og héldum innflutnings "slash" jólapartý hér í slottinu (það eru sko komnar nýjar pípur í eldhúsið og plástur yfir gatið sbr mynd). Mér tekst svo einkar vel upp að gera allt á síðustu stundu. Á fösutdags eftirmiðdegi fór ég á flakk og keypti jólatré, skraut á gripinn, seríur, slatta af rauðu og mat. Þrem klst síðar var jólatréð í stofunni, maturinn mallandi í pottinum og glöggið í blöndunarfasa. Við tókum fram stærstu pottana í eldhúsinu og elduðum gúllas úr lambakjöti og skelltum í glögg fyrir 17 manns (já og Hallur í Mohito fyrir gestina - danke danke) þarna var mættur skemmtilegur hópur af góðum vinum frá hmmm Þýskalandi, Króatíu, USA, Kanada, Austurríki, Le Islande, Frakklandi og Kína. Við komumst auðvitað að því að þetta er fínasta íbúð fyrir teiti og verður því að sjálfsögðu endurtekið á nýju ári, hmm etv með osta fondue.




Alex er líka einkar flinkur að gera allt á síðustu stundu. Hann flaug til San Francisco á ráðstefnu á sunnudaginn. Kvöldið áður þegar allt leit út fyrir að vera klappað og klárt virkaði að sjálfsögðu ekki tölvulíkanið sem hann var búin að vinna að vikum saman og þetta var pínu svart. Þá var tekin pása og við fórum í kraftmikla kjötsúpu sama kvöld hjá Andreu og Halli - súpan góða og öllarinn virkuðu svona fínt að Alex hrökk í gírinn og sat yfir vinnunni vel frameftir nóttu fyrir flug og reddaði málunum. Takk fyrir okkur :)

Fyrstu helgina í des voru Jana og Óðinn með árlegt jólateiti íslendinga hér í borg. Við skruppum þangað og þar var tekið svakalega vel á móti gestum með fullt borð af mat, víni og skemmtilegheitum. Við stoppuðum þó frekar stutt þar sem góðir vinir okkar Faron og Meghan voru með jólaboð sama kvöld. Við vorum búin að lofa okkur þangað og komum tímanlega til að búa til þýsk-ættað jólaglögg ofan í mannskapinn, sk Feuerzangebole. Það er nauðalíkt venjulegu glöggi nema maður skellir götóttri stálplötu ofaná pottin og kemur þar fyrir sykurkeilu. Síðan er góðum slurk af 80% rommi hellt yfir sykurinn og kveikt í öllu saman og úr verður myndarlegt bál og sykurinn drýpur í glöggið. Afar flott í partý...svo lengi sem maður kveikir ekki í neinu.

Um helgina kom svo snjór til Vancouver! Það er frekar sjaldgæf sjón. Hann heldur enn og það er spáð frosti áfram svo etv verða hvít jól í ár hér við vesturströndina. Það er búið að vera ótrúlega fallegt veður hérna í borg, allt hvítt og heiðskýrt úti & svo er búið að opna skíðasvæðin hérna við rætur borgarinnar. Við heyrðum frá vini okkar hér í borg að Vancouver hafi selt helminginn af öllum sínum snjóruðningstækjum til Kelowna þar sem þeir hefðu sama og engin not fyrir þau. Líklega pínlegt á dögum sem þessum enda er bara brandari að fylgjast með umferðinni hér í hálku því flestir eru á sumardekkjum.




Ég sit annars og sötra kaffi heima (að sjálfsögðu hið undragóða L&A roast). Er "að læra" heima fyrir síðustu lotu í hrinu viðtala sem ég hef farið í hjá líftækni fyritæki hér í borg fyrir stöðu í gæðaeftirliti. Þeir létu mig hafa bunka af birtum greinum frá þeim sem og ýmsa upplýsingapésa (aldeilis spennandi lesefni uhh!). Krossið fyrir mig fingur og fætur fyrir morgundaginn. Kveðjur og kossar frá Vancouver.

Engin ummæli: