fimmtudagur, 18. desember 2008
Ég fékk starfið !
Aaahhhh en ágætis endir á vikunni. Fékk að vita í dag að ég mæti til vinnu 5 janúar hjá Response Biomedical og fékk þennan líka ágæta samning - tóm gleði með það :-) Alex kemur heim á morgun, það er búið að snjóa helling og nú verður bara skíðað næstu 2 vikurnar "jaaabbadabbadúú" !!! Meira seinna. Lína vinkar.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
9 ummæli:
Húrra fyrir Línu - hún stendur sig vel. Knús frá múttu
Til hamingju með nýja djobbið. Og njóttu nú skíða- og jólafrísins. Við erum hálfabbó yfir að nú sé snjór í Vancouver, hefðum alveg verið til í að sjá borgina svona. Biðjum að heilsa Alex.
Kveðjur af klakanum,
Halldóra og Sveinbjörn
Vá, frábært Lína mín, svaka flott hjá þér. Tilveran brosir við ykkur :-) Hafið það sem allra best og ég veit að þið munið njóta vel jólanna í snjónum :-) Bestu jólakveðjur til ykkar frá mér og strákunum
Lukkunnar pamfíll - til lukku með þetta Lína.
Góða skemmtun á skíðunum - við ætlum að láta vestfirskur alpana duga þessi jólinn - en það er líka bara fínt því það er massa mikill snjór og það verður sko tekið á telemarkplönkunum.
Frábært! Til hamingju :)
Bestu jólakveðjur til ykkar Alex frá mér og strákunum mínum, Valda og Ljóma.
ps. það er búið að opna í Bláfjöllum fyrir almenning.. á skíðum skemmti ég mér trallalla
Er ekki ástæða til að fagna - kampavín í kvöld ??
Melfa Lane eða fimmta.....
Til lukku Lína mín;) Gleðileg jól og hafið það sem allra best skötuhjúin;) jólakveðjur og knús frá Stínu og co
Til lukku með jobbið :)
Bestu kveðjur úr Mávahlíðinni,
Guðrún Anna og Gunnar Halldór
Takk takk :)
Skrifa ummæli