
Gaman að segja frá því að við erum á leið uppá jökul á þriðjudaginn og ekki væntanleg til baka fyrr en 19 maí.
Ég sagði upp starfi mínu hjá Response Biomedical nú í apríl og hef því nú tækifæri á að skella mér í jöklaleiðangur. Við fljúgum til Whitehorse á þriðjudaginn ásamt góðum vinum Gwenn og Laurent. Gwenn er prófessor í jöklafræði við Simon Fraser Háskólann hér í borg og Laurent er franskur spússi hennar og fjallaleiðsögumaður. Frá Whitehorse keyrum við norður Alaska highway til Kluane Lake rannsóknarstöðvarinnar. Þar gistum við amk eina nótt og pökkum saman og skipuleggjum mat, tól og tæki til að gista í tjöldum uppá Kaskawulsh jökli. Frá Kluane Lake fljúgum við með þyrlu uppá jökul, þar verðum við skilin eftir í um 2000 m hæð til að hlúa að veðurathugunarstöðvum, radar- og gps mælingum og grafa holur hér og þar. Stór partur af öllu saman felst í því að þramma um á fjallaskíðum til að komast á milli mælipunkta...eðal alveg hreint! Þyrlan sækir okkur svo og skutlar okkur á annað svæði á jöklinum og þar setjum við upp nýjar tjaldbúðir. Á þessum árstíma er venjulega von á góðu veðri á þessu svæði svo ég vonast auðvitað eftir því að fá nokkra góða daga með bláum himni og 1sta klassa útsýni :-) Frá ca 4 - 19 maí verðum við ekki í tölvu né símasambandi en við verðum með gervihnattasíma svo við verðum í sambandi við umheiminn ef við þurfum á að halda.
Kaskawulsh er í Kluane National Park í Yukon fylki hér í Kanada sem liggur að landamærum Alaska. Kluane þjóðgarðurinn er náttúruperla sem hefur fengið sæti á heimsminjasskrá UNESCO. Rætur Kskawulsh liggja í St. Elias fjöllum í Yukon - hann teigir sig frekar langt enda 350 km langur og um 3 km breiður.
Meira seinna...LoA
7 ummæli:
Góða ferð :) Vertu nú dugleg á myndavélinni svo við fáum notið stórkostlegrar ferðar í gegnum linsuna þína.
Kv,
Guðrún Anna og Gunnar Halldór
Takk takk..sjáumst fljótlega :)
Vá, geðveikt! Góða skemmtun!
Kveðja frá Bjarnheiði sem kom í heimsókn með Andreu og Fönn
Vá - maður fer nú bráðum að hugsa það verulega alvarlega að flytja í þessa geiðveiku Fjallveröld sem þið búið í - Hryssingur á klakanum - njótið sælunnar
kveðja
sigríður
Sæl bæði tvö!
Þetta eru nú meiri ævintýrin sem þið lendið í þarna úti. Ég sé að vorleiðangur á Vatnajökul er nú bara prump í samanburði við þessa geðveiki.
Góða skemmtun!
BOKAT
Til hamingju með afmælið Lína, ég er á leið í fimmtugsafmæli, og skála fyrir þér þar:)
Hvernig er það, eruð þið ekki örugglega komin lifandi af fjöllum?
Takk Ella..jú mætt til byggða, póstur til þín í smíðum ;-)
Skrifa ummæli