Almenn hegðun: Ásættanleg
Borðsiðir: Hér vantar greinilega uppá uppeldi :)
Svefnvenjur: Ágætar
Drykkjuvenjur: Ágætar (HÞ á það til að fá sér bjór morgunmat)
Rötun: Merkilega góð (á líklega bara við SE)
Sjálfsbjargarviðleitni: Stígandi kúrva uppávið
Næstu daga á að aðlaga parið að meiri hæð yfir sjávarmáli í Whistler.
4 ummæli:
Góður bakstuðningur. Komið vel út í mynd innan um háhýsin. Haldið áfram að skemmta ykkur saman. Bestu kveðjur til allra - Heiða
Njótum allra lystisemda sem hægt er að hugsa sér. Hér er leikið við okkur frá morgni til kvölds - gerist ekki betra. Spurning hvort við fáumst til að fara heim. Didda
Gunni fékk smá áfall að sjá foreldra þína svona vel klædd á myndinni. Held að hann hafi ekki ætlað að pakka neinu nema sundskýlu, sólarolíu og strandhandklæði :) Er ekki komið sumar í Vancouver? Gunni sóldýrkandi er doldið spældur yfir sólarleysinu á Fróni þetta sumarið og var sannfærður um að sumrinu yrði reddað í Vancouver :) Sjáumst fljótlega, GAP
Ha ha..þegar þessi mynd var tekin þá var líklega eini "kaldi" dagurinn síðan í byrjun maí (svona ca 17 gráður)...hér er bara búið að vera stanslaus sól og ca 20 - 25 stiga hiti og er enn. Ætli verði þá ekki kominn tími á þrumur og eldingar þegar þið komið ! Hlökkum til að sjá ykkur :)
Skrifa ummæli