sunnudagur, 2. ágúst 2009

Gestagangur

Eftir tæpar 5 vikur með gesti. Takk fyrir komuna öllsömul...Mamma, pabbi, Fjóla, Hallgrímur, Hulda, Heiðrún, Guðrún Anna, Gunnar og Guðni. Eftir situr Ópal snafs og harðfiskur í frystinum. Prins póló, Ópal pakki, þristur og kúlusúkk komu hér við. Moggin, DV, Hús og hýbíli og meiraðsegja Vikan og Fréttablaðið liggja eftir á stofuborðinu...vantar bara ORA fiskibollur í dós.

Mamma mín hélt uppá 60 ára afmælið sitt hér í Vancouver. Systir mín og hennar fjölskylda mættu í leyni til Vancouver frá Houston og San Francisco í nokkra daga og við komum mömmu á óvart þegar við hittumst öll í morgunmat við Granville island. Ég rölti með mömmu að borðinu þar sem Fjóla, Hulda, Heiðrún og Hallgrímur sátu og sagði "sjáðu hvað þessi maður er líkur Hallgrími" og benti á mág minn. "Já það er rétt, hvar er svo klósettið" segir mamma, horfir á alla fjölskylduna og fattaði ekkert en hrökk svo í kút.



Við tókum ferjuna til Galiano eyju með óborganlegu útsýni og lágum þar að mestu í leti og borðuðum góðan mat. Komum við í Victoriu, höfuðborg Bresku Kólumbíu og keyrðum svo norður eftir Vancovuer eyju og tókum aðra ferju yfir á Sunshine Coast. Þar sendum við mömmu & pabba upp í tréhús í gistinu og sjálf gistum við í litlu penthouse fyrir ofan gamla hlöðu rétt hjá. Við röltum með SE og HÞ um regnskóga Egmont og að Skookumchuck.
Áhugasamir geta kíkt á myndasíðuna okkar til að fræðast um Skookumchuck en þar er ferðasagan vel skráð í myndum. Í Egmont er líka að finna flottasta morgunverðar stað sem fyrir finnst í "Westcoast Wilderness Lodge". Veit ekki hvort við slefuðum meira yfir útsýninu eða morgunmatnum.

SE og HÞ fengu lúxus veður allan tíman og voru fastagestir í útilauginni hér rétt hjá og löbbuðu um hverfið þvert og endilangt sem og Whistler og Deep Cove. HÞ sá til þess að bjórskúffan væri alltaf full og fyllti reglulega frystinn af ís. Mamma bakaði bollur eins og vindurinn og hér var veisla á borðum frá morgni til kvölds. Takk fyrir komuna !



Næstu gestirnir okkar voru Guðrún Anna vinkona og spússi hennar Gunnar. Þau komu með jómfrúarflugi Icelandair til Seattle og tímasettu ferðalagið vel og náðu hér mestu hitabilgju sem hefur komið í Vancovuer síðan mælingar hófust og mestu þrumum og eldingum í manna minnum. Þau kræktu líka í flugeldasýninguna/keppnina Celebration of Light þar sem Kanada, Bretland, Suður Afríka og Kína reyndu að toppa hvert annað með flugeldum í takt við tónlist á fjórum kvöldum.



Það var um 30 stiga hiti hérna inni í íbúðinni hjá okkur (og er enn!) svo það voru öll ráð notuð til kælingar. Fyrir utan sjóböð, kaldan bjór og klaka á ennið greip Gunnar til þess ráðs að taka með sér 2ja lítra frosna vatnsflösku vafða í poka í bólið og faðma klakann yfir nóttina. Í hitanum er líka nóg af flugum, það er forlátt geitunga bú við veröndina og Gugga geitungur kom reglulega og stal m.a. hjá okkur skinku úr morgunmatnum og það var aðdáunarvert að sjá kvikindið hefja bitann á loft. Fyrir utan allar gönguferðirnar í borginni og hér við strandlengjuna drifum við okkur í rúmlega 20 km göngu uppá fjall að sk. Elfin Lakes. Þar var hressandi að synda í hitanum og losna um leið við flugurnar og útsýnið var maaaagnað. Við héldum loks smá partý á föstudaginn og kvöddum Guðrúnu og Gunnar og Guðni mætti ofan af jökli í gistingu og svaf í hengirúminu úti á verönd !

Engin ummæli: